Gáfu okkur mjög erfiðan leik

José Mourinho kallar til lærisveina sinna í dag.
José Mourinho kallar til lærisveina sinna í dag. AFP

Þeir gáfu okkur mjög erfiðan leik og það ber að hrósa þeim fyrir það. Við hefðum verið í miklum vandræðum ef við hefðum ekki spilað vel sjálfir. Það sást ekki hvort liðið er sterkara á löngum köflum í leiknum,“ sagði José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 2:1 sigurinn á Blackburn í enska bikarnum í dag.  

„Markið sem við fengum á okkur var glæsilegt mark, skotið og hreyfingarnar voru mjög góðar,“ sagði Mourinho.

Manchester United mætir Chelsea á útivelli í 8-liða úrslitunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert