„Var ekki auðveldur leikur“

Wenger á hliðarlínunni í kvöld.
Wenger á hliðarlínunni í kvöld. AFP

„Við gerðum það sem við ætluðum okkur en þetta var ekki auðveldur leikur og ég verð að hrósa liðsmönnum Sutton,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir sigur sinna manna gegn utandeildaliðinu í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

„Sutton lék mjög vel og í hvert skipti sem við gerðum mistök nýtti liðið sér það á þessum velli,“ sagði Wenger en leikurinn fór fram á gervigrasvelli.

„Ef við hefðum ekki verið andlega tilbúnir í þennan leik hefðum við ekki farið áfram. Lið Sutton var skipulagt og spilaði leikinn af mikilli ástríðu en þessi sigur var góður fyrir sjálfstraust leikmanna minna,“ sagði Wenger en hans menn mæta öðru utandeildaliði í átta liða úrslitunum. Þá verða mótherjarnir Lincoln sem gerði sér lítið fyrir og sló Burnley úr leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert