Markverðir City eru vítabanar

Willy Caballero ver hér vítaspyrnu frá Radamel Falcao í kvöld.
Willy Caballero ver hér vítaspyrnu frá Radamel Falcao í kvöld. AFP

Andstæðingum Manchester City í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu hefur ekki gengið vel að skora úr vítaspyrnum sínum.

Markverðir Manchester City hafa varið fimm síðustu síðustu vítaspyrnur í Meistaradeildinni. Caballaro tvö, en hann varði vítaspyrnu frá Radamel Falcao í kvöld, og Joe Hart, fyrrverandi markvörður liðsins, þrjár.

„Þetta var brjálaður leikur. Sem betur fer unnum við en við þurfum að mæta þessu frábæra liði aftur. Ég valdi sem betur fer rétta hornið þegar Falcao tók vítaspyrnuna. Við vorum búnir að skoða spyrnur Falcao og fleiri þeirra sem taka vítin,“ sagði Caballero.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert