Gylfi kominn á toppinn

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er kominn með flestar stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu ásamt Belganum Kevin De Bruyne í liði Manchester City eftir að hann lagði upp jöfnunarmarkið gegn Chelsea.

Gylfi og De Bruyne hafa hafa báðir átt 9 stoðsendingar og Gylfi hefur nú komið að 17 af 33 mörkum liðsins í deildinni, hefur skorað 8 og lagt upp 9.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert