Tapa gegn liðum í fallsæti

Marc Albrighton fer framhjá Nathan Clyde og Emré Can.
Marc Albrighton fer framhjá Nathan Clyde og Emré Can. AFP

Liverpool tapaði í gærkvöld sínum fimmta leik í ensku úrvalsdeildinni þegar það tapaði fyrir Englandsmeisturum Leicester City á King Power Stadium.

Tapleikir Liverpool hafa allir komið á móti liðunum sem eru á meðal þeirra neðstu í deildinni og fjórir þeirra hafa komið á móti liðum sem hafa verið í fallsæti fyrir leikinn, Leicester, Burnley, Swansea og Hull. Fimmti tapleikur Liverpool var á móti Bournemouth.

Liverpool er hins vegar með bestan árangur í innbyrðisleikjum sex efstu liðanna í deildinni en staðan innbyrðis á meðal þeirra er Liverpool (16), Chelsea (13), Tottenham (9), Manchester City (7), Manchester United (6), Arsenal (5).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert