Betra að vinna með Mourinho en Wenger

Gallas í leik gegn Arsenal.
Gallas í leik gegn Arsenal. AFP

William Gallas, fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea, viðurkennir að hann naut þess meira að vinna með José Mourinho en Arsene Wenger, þar sem Mourinho krefst meira af leikmönnum sínum. 

Gallas lék undir stjórn Mourinho hjá Chelsea í tvö ár og svo undir stjórn Wenger hjá Arsenal í fjögur ár. Gallas vann ensku úrvalsdeildina í tvígang með Chelsea, en engan titil í treyju Arsenal.

„Báðir þjálfarar vilja vinna titla en José sýnir manni nákvæmlega hvernig hann vill að þú æfir. Ef þú ert ekki 100% á æfingum stöðvar hann æfinguna og spyr hvað sé að. Hann sættir sig ekki við neitt minna en allt sem maður á.“

„Það er aðeins öðruvísi með Wenger. Hann lætur þig hugsa um þig sjálfan, mér leið betur hjá Mourinho. Hann stóð alltaf við bakið á mér,“ sagði Gallas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert