Chelsea eða United í undanúrslit?

Það eru mikil forföll hjá Manchester United.
Það eru mikil forföll hjá Manchester United. AFP

Það er stórleikur á dagskrá í enska FA-bikarnum í knattspyrnu í kvöld þegar Chelsea fær Manchester United í heimsókn á Stamford Bridge í átta liða úrslitum.

United er í miklum framherjavandræðum þar sem Wayne Rooney, Anthony Martiel og Marcus Rashford eru allir frá vegna meiðsla eða veikinda og Zlatan Ibrahimovic er í banni. Chelsea er hins vegar ekki að glíma við nein teljandi meiðsli.

Hvorugt liðið hefur áður mætt öðru úrvalsdeildarliði í FA-bikarnum í vetur. Chelsea sló út Peterborough, Brentford og Wolves en United hafði betur gegn Reading, Wigan og Blackburn.

Sigurvegarinn fylgir Manchester City, Arsenal og Tottenham í undanúrslitin en þau komust öll áfram um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert