Wenger búinn að taka ákvörðun

Wenger er búinn að ákveða sig.
Wenger er búinn að ákveða sig. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er búinn að taka ákvörðun um hvort hann haldi áfram eða hætti með liðið eftir leiktíðina og mun hann tilkynna ákvörðun sína fljótlega. 

Arsenal tapaði sínum fjórða leik af síðustu fimm í ensku úrvalsdeildinni í dag, er WBA skoraði þrjú mörk gegn einu marki lærisveina Wenger, og eru stuðningsmenn félagsins margir hverjir orðnir þreyttir á Frakkanum.

Wenger var spurður út í framtíð sína eftir leikinn. 

„Ég veit hvað ég mun gera og ég mun tilkynna það mjög fljótlega. Það kemur í ljós en ég er ekki að hugsa um það í dag. Ég er að upplifa hluti sem ég hef ekki upplifað í 20 ár sem þjálfari liðsins og það er mikilvægara að laga það, en að hugsa um framtíð mína,“ sagði Wenger. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert