Mourinho í verslunarferð til Króatíu

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er sagður vera staddur í Króatíu þar sem hann freistar þess að ná samningi við einn leikmann króatíska landsliðsins.

Leikmaðurinn sem um ræðir er Ivan Perisic, leikmaður ítalska A-deildarliðsins Inter Milano, en Perisic verður í eldlínunni með Króötum í kvöld þegar þeir taka á móti Úkraínumönnum í riðli okkar Íslendinga í undankeppni HM.

Verðmiðinn á Perisic, sem er sóknarsinnaður miðjumaður, er sagður vera um 35 milljónir punda en Perisic er 28 ára gamall og hefur leikið með Inter frá árinu 2015 en lék áður með þýsku liðunum Borussia Dortmund og Wolfsburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert