Ætlar að mæta sterkari til leiks

Sadio Mané.
Sadio Mané. AFP

Senegalski sóknarmaðurinn Sadio Mané lofar því að koma sterkari til leiks eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir í gær.

Mané, sem markahæsti leikmaður Liverpool á tímabilinu, með 13 mörk, leikur ekki meira með á tímabilinu en brjóskskemmdir í hnénu urðu þess valdandi að hann þurfti að fara í aðgerð.

„Ég mun gera mitt besta, eftir þessa vel heppnuðu aðgerð í gær, til að snúa aftur inn á völlinn eins fljótt og mögulegt er og verða jafnvel betri en ég var,“ segir Mané á vef Liverpool.

Liverpool er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni en næsti leikur liðsins er á útvelli gegn WBA í hádeginu á páskadag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert