„Allir þeir leikir sem við eigum eftir eru úrslitaleikir,“ sagði Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, eftir jafntefli sinna manna gegn Manchester United í kvöld.
„Við megum ekki gleyma því hvaða liði við mættum hér í kvöld. Ég veit hversu erfitt það er að spila við Manchester United. Hver leikur sem við eigum eftir verður úrslitaleikur. Það er aldrei auðvelt að spila á móti liði sem er með svona marga menn fyrir aftan boltann. Við eigum öll eftir erfiða leiki og hver leikur verður mikilvægur,“ sagði Guardiola.