Vilja fá Gylfa til Liverpool

Gylfi Þór Sigurdsson.
Gylfi Þór Sigurdsson. AFP

Stuðningsmenn Liverpool hvetja félagið til að kaupa Gylfa Þór Sigurðsson frá Swansea í sumar en Gylfi á fyrirsagnirnar í enskum fjölmiðlum í dag eftir að hafa tryggt sínum mönnum jafntefli gegn Manchester United á Old Trafford með frábæru marki úr aukaspyrnu.

Ljóst er að mikil slagur verður um að klófesta Gylfa í sumar hvort sem Swansea heldur sæti sínu í deildinni eða ekki. Vitað er Everton, West Ham, Southampton og Newcastle hafa augastað á íslenska landsliðsmanninum og fleiri félög eru eflaust með hann í sigtinu. Gylfi hefur komið að 21 af 40 marki Swansea á leiktíðinni, hefur skorað 9 og lagt upp 12.

Margir stuðningsmenn Liverpool skrifuðu twitter-færslur í dag eftir leik Manchester United og Swansea og hér má sjá nokkrar þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert