Coleman með nýjan fimm ára samning

Seamus Coleman.
Seamus Coleman. Ljósmynd/evertonfc.com

Seamus Coleman, bakvörðurinn skæði í liði Everton, skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Coleman, sem er 28 ára gamall, er nú samningsbundinn Everton til ársins 2022 en írski bakvörðurinn er að jafna sig eftir að hafa fótbrotnað í leik með Írum gegn Wales í undankeppni HM í marsmánuði.

Coleman hefur leikið með Everton frá árinu 2009 en félagið keypti hann fyrir lítinn pening frá írska liðinu Sligo Rovers. Hann hefur á síðustu árum stimplað sig inn sem einn besti bakvörðurinn í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert