Zabaleta sagður á leið til West Ham

Pablo Zabaleta var tolleraður af samherjum sínum eftir síðasta leik …
Pablo Zabaleta var tolleraður af samherjum sínum eftir síðasta leik hans með Manchester City. AFP

Líklegt þykir að argentínski bakvörðurinn Pablo Zabaleta gangi til liðs við West Ham í þessari viku.

Enska blaðið Evening Standard greinir frá því að West Ham vonist til að ganga frá samningi við Zabaleta á næstu dögum en ljóst er að hann verður ekki áfram í herbúðum Manchester City.

Zabaleta, sem er 32 ára gamall, er í sigtinu hjá liðum á Spáni og á Ítalíu en hann er sagður vilja halda kyrru fyrir á Englandi og fari til West Ham án greiðslu en samningur hans við Manchester City er að renna út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert