Enska knattspyrnufélagið Leeds United hefur staðfest að Ronaldo Vieira hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Vieira spilaði 38 leiki fyrir Leeds á leiktíðinni og skoraði hann eitt mark.
Vieira er aðeins 18 ára gamall og með eitt skemmtilegasta nafnið í enska boltanum í dag. Vieira var valinn besti ungi leikmaður félagsins fyrir leiktíðina sem var að líða. Ronaldo á tvíburabróðir sem heitir Romario og voru þeir skírðir til höfuðs brasilískra knattspyrnumanna.
Leikmaðurinn var kallaður upp í U20 ára landslið Englendinga sem leikur í Toulon-bikarnum síðar í þessum mánuði.