Vongóðir um að fá tvo öfluga

Leikmenn City ganga af velli eftir leikinn gegn Watford í …
Leikmenn City ganga af velli eftir leikinn gegn Watford í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. AFP

Liðsmenn Manchester eru vongóðir um að tveir klassaleikmenn úr tveimur Lundúnaliðum muni bætast í leikmannahóp City í sumar.

Þar er um að ræða þá Alexis Sánchez, sóknarmanninn frábæra í liði Arsenal, og hægri bakvörðinn Kyle Walker sem leikur með Tottenham.

Bresku blöðin greina frá þessu í dag og segja að City sé reiðubúið að punga út 100 milljónum punda fyrir þessa tvo leikmenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert