Steven Gerrard, fyrrverandi leikmaður Liverpool, telur að Jürgen Klopp knattspyrnustjóri liðsins geti laðað til félagsins toppleikmenn í sumar.
„Ef ég er toppleikmaður einhvers staðar í Evrópu og Jürgen tekur upp símann og ég fengi tækifæri til að spila með Liverpool, sem er að taka skref fram á við, myndi ég stökkva á það. Ég vil spila fyrir hann og ég verð 37 ára í næstu viku,“ segir Gerrard í viðtali við Liverpool Echo en hann er orðinn þjálfari U18 ára liðs Liverpool og lék með aðalliðinu æfingaleik gegn Sydney FC í Ástralíu í fyrradag.
Á næstu þremur, fjórum, fimm árum gerast spennandi hlutir og leikmenn vilja verða hluti af því sem Jürgen er að gera,“ segir Gerrard.