Crystal Palace að landa De Boer

Frank de Boer.
Frank de Boer. AFP

Sky Sports greinir frá því í dag að enska knattspyrnufélagið Crystal Palace hafi boðið Hollendingnum Frank de Boer að taka við þjálfun liðsins. Palace hefur verið að leita að nýjum stjóra eftir að Sam Allardyce hætti skyndilega sem þjálfari liðsins eftir síðustu leiktíð. 

De Boer hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Inter Milan í nóvember á síðasta ári. De Boer vann hollensku deildina fjórum sinnum með Ajax á milli 2010 og 2016. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert