Salah staðfestur sem leikmaður Liverpool

Mohamed Salah í leik með Roma.
Mohamed Salah í leik með Roma. AFP

Knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah er genginn í raðir enska félagsins Liverpool frá Roma á 34 milljónir punda. Hinn 25 ára gamli Salah skrifar undir fimm ára samning við félagið.

Salah er næstdýrasti leikmaður í sögu Liverpool á eftir Andy Carroll sem var keyptur á 35 milljónir punda árið 2011.

Egyptinn skoraði 15 mörk í 31 leik fyrir Roma á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert