Klopp er hæstánægður

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er hæstánægður með að hafa klófest Mohamed Salah, sem gekk í raðir Liverpool fyrir 34 milljónir punda frá Roma í gær.

„Hann er með frábæra blöndu af reynslu og hæfileikum. Þetta er mjög spennandi viðbót í lið okkar. Ég hef fylgst með honum síðan hann var ungur og hann hefur þroskast í mjög sterkan leikmann,“ sagði Klopp.

„Hraði hans er ótrúlegur, sem gefur okkur meiri kraft í sóknarleikinn þar sem við erum þegar sterkir. Við verðum enn hættulegri fram á við,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert