Þýska blaðið Sport Bild heldur því fram að Liverpool hafi áhuga á að festa kaup á Pierre-Emerick Aubameyang sem er að öllum líkindum á leið frá Borussia Dortmund í sumar.
Talið er að Borussia Dortmund vilji fá 63 milljónir punda fyrir gabonska framherjann sem hefur skorað 85 mörk í 128 leikjum fyrir þýska liðið.
Liverpool þarf því að slá metið yfir dýrasta leikmann í sögu félagsins sem félagið setti í vikunni þegar liðið keypti egypska landsliðsmanninn á 36 milljónir punda til þess að tryggja sér þjónustu Aubameyang.