Chelsea með Vitolo í sigtinu

Antonio Conte.
Antonio Conte. AFP

Antonio Conte knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea er sagður hafa mikinn áhuga á að fá spænska leikstjórnandann Vitolo til liðs við sig í sumar.

Vitolo, sem heitir fullu nafni Victor Machín Pérez og er 27 ára gamall, leikur með spænska liðinu Sevilla þar sem hann hefur verið í stóru hlutverki frá því hann kom til liðsins frá Las Palmas fyrir fjórum árum.

Að því er fram kemur í enska blaðinu Mirror er ákvæði í samningi leikmannsins að félag geti keypt hann fyrir 35 milljónir punda. Vitolo hefur spilað 11 leiki með spænska A-liðinu og hefur í þeim skorað 4 mörk en hann vann Evrópudeildina með Sevilla þrjú ár í röð frá 2014-'16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert