Roma áhugasamt um Moreno

Jake Jervis gegn Alberto Moreno í leik Plymouth og Liverpool …
Jake Jervis gegn Alberto Moreno í leik Plymouth og Liverpool á síðustu leiktíð. AFP

Samkvæmt heimildum ítalska miðilsins Corriere dello Sport er ítalska knattspyrnuliðið Roma á höttunum eftir Alberto Moreno, bakverðinum spænska í Liverpool.

Napoli hefur einnig talið vera áhugasamt um kappann en Liverpool hefur hafnað einu tilboði í hann upp á 11 milljónir punda.

Talið er að forráðamenn Roma hafi rætt um Moreno í viðræðunum um kaup Liverpool á Mohamed Salah á dögunum.

Moreno kom til Liverpool frá Sevilla á 12 milljónir punda árið 2014 en hann á að baki 72 leiki og 3 mörk fyrir Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert