Burnley að kaupa Jonathan Walters

Jonathan Walters í leik með írska landsliðinu.
Jonathan Walters í leik með írska landsliðinu. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Stoke City hefur samþykkt tilboð upp á þrjár milljónir punda frá Burnley í sóknarmanninn Jonathan Walters. Hinn 33 ára gamli Walters á eftir að samþykkja kaup og kjör hjá Burnley, en búist er við að gengið verði frá félagsskiptunum í vikunni. 

Walters gekk í raðir Stoke frá Ipswich árið 2010 og hefur hann leikið rúmlega 250 leiki fyrir Stoke og skorað í þeim 62 mörk. 

Burnley hefur verið í leit að sóknarmanni eftir að George Boyd hafnaði samningstilboði félagsins og gekk þess í stað í raðir Sheffield Wednesday.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert