Rooney tilbúinn að taka á sig launalækkun

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney er tilbúinn til þess að taka á sig launalækkun til að ganga í raðir uppeldisfélagsins Everton frá Manchester United. Rooney á tvö ár eftir af samningi sínum við United, en hann vill færa sig um set til að fá að spila meira. 

Rooney yfirgaf Everton fyrir United árið 2004, þá aðeins 18 ára. Hann skoraði aðeins fimm mörk í 25 leikjum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á síðustu leiktíð. Þá hefur Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, tjáð Rooney að hann verði ekki valinn í landsliðshópinn nema hann spili meira. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert