Þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um

Romelu Lukaku.
Romelu Lukaku. AFP

Romelu Lukaku segist ekki hafa þurft að hugsa sig tvisvar um að fara til Manchester United en belgíski sóknarmaðurinn er á leið til United frá Everton fyrir 75 milljónir punda.

„Þetta er félag sem hungrar í að vinna deildina aftur og að verða ríkjandi í heiminum. Þetta er tækifæri sem ég hef alltaf vilja fá síðan ég var krakki,“ sagði Lukaku við ESPN eftir að hafa gengist undir læknisskoðun í Los Angeles í Bandaríkjunum.

„Hver myndi segja nei við stærsta félagið í heimi sem hefur besta völlinn á Englandi og bestu stuðningsmennina? Þetta er fullkomið tækifæri. Ég hef alltaf sagt að ég vildi spila með liði sem er að berjast um alla titla og það geri ég hjá United,“ sagði Lukaku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert