Antonio Valencia, leikmaður Manchester United, hefur beðist afsökunar á rauða spjaldinu sem hann fékk að líta í 2:1 sigri United gegn bandaríska liðinu Real Salt Lake í æfingaleik liðanna í fyrrinótt.
Valencia fékk rautt spjald í seinni hálfleik 23 mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður fyrir ljótt brot.
„Þetta er mín sök og ég vona að svona gerist ekki í mikilvægum leik í deildinni eða í Meistaradeildinni. Þetta var vináttuleikur og ég vil biðja stuðningsmennina og samherja mína afsökunar. Ég vona að svona gerist ekki í framtíðinni,“ segir Valencia.