Segja Swansea hafa hafnað nýja tilboðinu

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Swansea City hefur þegar hafnað nýja tilboðinu frá Everton í Gylfa Þór Sigurðsson, landsliðsmann í knattspyrnu, samkvæmt heimildum netmiðilsins Walesonline.

Sky Sports skýrði frá því síðdegis að samkvæmt heimildum hefði Everton gert nýtt tilboð í Gylfa, 45 milljónir punda, en áður hafði Swansea hafnað 40 milljóna punda tilboði í hann.

Walesonline segir að nýja tilboðið hafi hljóðað upp á 40 milljónir þar sem síðan hefðu verið ákvæði um að það hækkaði upp í 45 milljónir að ýmsum skilyrðum uppfylltum.

Vefurinn segir að Swansea muni hafa hafnað þessu strax og haldi fast við fyrri yfirlýsingar um að Everton þurfi að greiða 50 milljónir punda til að fá Gylfa í sínar raðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert