City burstaði Real Madrid (myndskeið)

Karim Benzema og Danilo í baráttu um boltann.
Karim Benzema og Danilo í baráttu um boltann. AFP

Manchester City, sem er væntanlegt til Íslands í næstu viku, vann öruggan sigur gegn Spánar- og Evrópumeisturum Real Madrid, 4:1, þegar liðin mættust í Bandaríkjunum í nótt.

Staðan var 0:0 í hálfleik en á 52. mínútu skoraði Nicolas Otamendi fyrsta mark leiksins fyrir City og þeir Raheem Sterling, John Stones og Brahim Diaz komu Manchester City í 4:0 áður en Oscar Rodriguez klóraði í bakkann fyrir Real Madrid á lokamínútunni en mörkin má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert