Milan vill fá Costa

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

AC Milan er í viðræðum við Chelsea um kaup á framherjanum Diego Costa að því er ítalskir fjölmiðlar greina frá í dag.

Costa fékk þau skilaboð frá knattspyrnustjóranum Antonio Conte í sumar að hann ætti ekki framtíð hjá félaginu og síðan þá hefur hann verið sterklega orðaður við sitt gamla félag á Spáni, Atlético Madrid.

Nú hefur AC Milan blandað sér í baráttuna um að fá Costa, sem skoraði 20 mörk fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Costa kom til Chelsea frá Atlético Madrid fyrir þremur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert