Swansea með Negredo í sigtinu

Alvaro Negredo.
Alvaro Negredo. AFP

Swansea City er að reyna að fá spænska framherjann Alvaro Negredo til liðs við sig en hann lék með Middlesbrough á síðustu leiktíð.

Negredo, sem er 31 árs gamall, er samningsbundinn spænska Valencia en fram kemur í enskum fjölmiðlum í dag að forráðamenn Swansea hafi sett sig í samband við Valencia með það fyrir augum að fá sóknarmanninn til liðs við sig.

Negredo skoraði 9 mörk í 36 leikjum með Middlesbrough sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Hann var á mála hjá Manchester City frá 2013-15 þar sem skoraði 9 mörk í 32 leikjum með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert