Adam Lallana, miðjumaður enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool, verður ekkert með liðinu næstu tvo mánuðina þar sem hann er að glíma við meiðsli í læri. Lallana varð fyrir meiðslunum í æfingaleiknum gegn Atlético Madrid í gær.
Lallana mun missa af byrjun ensku úrvalsdeildarinnar og ekki vera með í stórum leikjum gegn Arsenal og Manchester City og svo er spurning hvort hann verði tilbúinn fyrir leik gegn Manchester United þann 14. október næstkomandi.