Fosu-Mensah á leið til Crystal Palace

Fosu-Mensah í baráttu við Gareth Bale.
Fosu-Mensah í baráttu við Gareth Bale. AFP

Timonthy Fosu-Mensah, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United, er á leiðinni í læknisskoðun hjá Crystal Palace. Hollendingurinn mun skrifa undir lánssamninginn sem gildir til loka leiktíðar. 

Fosu-Mensah getur spilað sem hægri bakvörður, miðvörður og miðjumaður. Frank de Boer, þjálfari Palace, lagði áherslu á að styrkja varnarleikinn hjá liðinu fyrir leiktíðina, en félagið fékk miðvörðinn Jairo Riedewald fyrr í sumar. 

Fosu-Mensah hefur leikið 21 leik fyrir Manchester United. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert