Fosu-Mensah lánaður til Crystal Palace

Fosu-Mensah er mættur til Crystal Palace.
Fosu-Mensah er mættur til Crystal Palace. Ljósmynd/Twitter

Timothy Fosu-Mensah, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United, hefur skrifað undir eins árs lánssamning við Crystal Palace sem leikur í sömu deild. Hinn 19 ára gamli Fosu-Mensah hefur leikið 21 leik fyrir United. 

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Palace fær til liðs við sig í sumar, en áður hafði félagið gengið frá samningum við Ruben Loftus-Cheek og Jairo Riedewald. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert