Liverpool hafnar beðni Coutinho

Philippe Coutinho
Philippe Coutinho AFP

Eins og mbl.is greindi frá í dag hefur brasilíski knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho farið fram á sölu frá félaginu, þar sem hann vill ganga í raðir Barcelona. Þrátt fyrir það hefur Liverpool lítinn áhuga á að selja leikmanninn. 

Liverpool hefur hafnað formlegri beðni sóknarmannsins á að vera seldur. Enska félagið hefur hafnað tveimur tilboðum í Coutinho, en það síðasta var upp á 90,4 milljónir punda. 

Samkvæmt frétt frá Sky Sports er Coutinho ósáttur við framkomu Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, í sinn garð, en Klopp hefur alltaf haldið því fram að Brasilíumaðurinn verði áfram hjá félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert