Segir Liverpool geta haldið Coutinho

Philippe Coutinho
Philippe Coutinho AFP

Phil Thompson, fyrrum leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool, hefur trú á því að félagið geti haldið í Philippe Coutinho, en aðeins ef liðið kemst í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool mætir Hoffenheim á útivelli í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppninni síðar í dag. 

Coutinho verður ekki með liðinu í dag vegna bakmeiðsla en hann bað um sölu frá félaginu á dögunum þar sem hann vill ganga í raðir Barcelona. 

„Ég held Liverpool geti haldið í Coutinho ef liðið kemst í riðlakeppnina. Liverpool hefur gert allt fyrir Coutinho. Félagið gaf honum fimm ára samning og hækkuðu launin hans eins og umboðsmaðurinn bað um og félagið hefur rétt á því að halda honum."

„Liverpool hefur engan áhuga á að selja Coutinho á meðan það er ekki kominn neinn í staðinn," sagði Thompson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert