Wilshere sá rautt fyrir slagsmál (myndband)

Jack Wilshere hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu.
Jack Wilshere hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Jack Wilshere fékk að líta rauða spjaldið í leik varaliðs Arsenal gegn varaliði Manchester City í kvöld. Wilshere brást afar illa við tæklingu frá Matthew Smith og réðst að City-manninum í kjölfarið. Að lokum fékk Wilshere rautt spjald, ásamt Tyeke Wilson sem tók þátt í slagsmálunum. 

Wilshere leikur með varaliðinu um þessar mundir en hann er enn að komast í gang eftir fótbrot. Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert