Southampton kaupir Hollending

Wesley Hoedt er orðinn leikmaður Southampton.
Wesley Hoedt er orðinn leikmaður Southampton. Ljósmynd/Heimasíða Southampton

Enska úrvalsdeildarfélagið Southampton hefur gengið frá kaupum á hollenska varnarmanninum Wesley Hoedt frá Lazio á Ítalíu. Hoedt skrifar undir fimm ára samning við Southampton. 

Hoedt byrjaði ferilinn hjá AX Alkmaar í heimalandinu áður en hann gekk í raðir Lazio árið 2015. Hann lék 46 leiki á Ítalíu og skoraði í þeim tvö mörk. Hann á að baki fjóra landsleiki fyrir hollenska landsliðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert