Alexis Sánchez nálgast Manchester City

Alexis Sánchez gæti farið til Manchester City.
Alexis Sánchez gæti farið til Manchester City. AFP

Samkvæmt heimildum Sky Sports mun enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City leggja fram tilboð í Alexis Sánchez, leikmann Arsenal, í vikunni. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, vill ólmur fá Sílebúann í sínar raðir, en þeir unnu saman hjá Barcelona á sínum tíma. 

Sánchez á minna en eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og hefur hann takmarkaðan áhuga á að framlengja hann. Sky greinir frá því að City íhugi að bjóða Raheem Sterling eða Sergio Agüero í hina áttina.

Samkvæmt TV 13-sjónvarpsstöðinni í Síle bað sóknarmaðurinn um að yfirgefa landsliðshópinn í dag til að ganga frá persónulegum málefnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert