Hafnaði Chelsea og vill til Liverpool

Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain. AFP

Enski miðjumaðurinn Alex Oxlade-Chamberlain vill ekki ganga í raðir Chelsea frá Arsenal en félögin höfðu náð samkomulagi um kaupverð. Að sögn heimildamanna Sky Sports vill kappinn ekki fara til Chelsea heldur Liverpool.

Arsenal og Chelesa höfðu náð samkomulagi um 35 milljóna punda kaupverð en hinn 24 ára gamli Oxlade-Chamberlain vill heldur til Bítlabogarinnar.

Oxlade-Chamberlain á ár eftir af samningi sínum við Arsenal og mun því annaðhvort klára samning sinn eða ganga í raðir Liverpool bjóði félagið nægilega háa upphæð.

Oxlade-Chamberlain hefur byrjað í öllum leikjum Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í haust þar sem liðið hefur unnið Leicester en tapað gegn Stoke og Liverpool. Liðið fékk raunar skell á Anfield um síðustu helgi, 4:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert