Stjóri og liðsfélagi Arons verðlaunaðir

Neil Warnock með verðlaunin
Neil Warnock með verðlaunin Ljósmynd/Heimasíða Cardiff

Neil Warnock, knattspyrnustjóri Cardiff City í ensku B-deildinni, hefur verið valinn stjóri ágústmánaðar. Narhaniel Mendez-Laing, leikmaður Cardiff, var valinn leikmaður mánaðarins. 

Cardiff hefur unnið alla fimm leiki sína í deildinni til þessa, skorað tíu mörk og aðeins fengið á sig tvö. 

Mendez-Laing skoraði fjögur mörk í leikjunum fimm. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hefur leikið deildarleiki Cardiff til þessa frá upphafi til enda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert