Svíinn Victor Lindelöf fær tækifæri í byrjunarliði Manchester United annað kvöld þegar liðið tekur á móti Basel í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.
José Mourinho, stjóri United, hefur ákveðið að Lindelöf og Chris Smalling verði í miðvarðarstöðunum gegn svissnesku meisturunum.
Lindelöf, sem United keypti í sumar fyrir 31 milljón punda, hefur ekkert komið við sögu í fyrstu fjórum leikjum Manchester-liðsins í deildinni. Hann lék nokkra leiki liðsins á undirbúningstímabilinu og þótti ekkert sérlega sannfærandi í þeim leikjum.