Jóhann Berg og félagar töpuðu í vítakeppni

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley eru úr …
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley eru úr leik í deildabikarnum. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley féllu úr leik í 32-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Burnley og Leeds United áttust við á Turf Moor heimavelli Burnley í dramatískum leik. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 2:2, þar sem Burnley jafnaði metin á sjöttu mínútu í uppbótartíma. Ekkert var skorað í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar hafði Leeds betur, 5:3.

Jóhann Berg lék allan tímann fyrir Burnley en var ekki einn af þeim sem tóku vítaspyrnur fyrir úrvalsdeildarliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert