Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool mátti horfa upp á lið sitt falla úr leik í 32-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Leicester, 2:0 á King Power vellinum.
„Við spiluðum virkilega góðan fótbolta í fyrri hálfleik og sköpuðum okkur fín færi. En leikurinn er í 90 mínútur. Mér er farið að leiðast að sjá þessi mörk sem við fáum á okkur. Leicester tókst einhvern veginn komast í gegnum leikinn. Þeir skoruðu of auðveldlega,“ sagði Klopp en þetta var fjórði leikur Liverpool í röð án sigurs.
Liverpool fær tækifæri til að hefna ófaranna en liðin eigast aftur við á King Power vellinum á laugardaginn en þá mætast liðin í deildinni.