Hollenski markvörðurinn Tim Krul er endanlega farinn frá Newcastle eftir að hafa leikið einn leik á láni hjá Brighton í ensku úrvalsdeildinni.
Krul var í sumar lánaður út tímabilið til Brighton, en í dag var tilkynnt upp úr þurru að hann væri búinn að skrifa undir endanlegan eins árs samning við félagið. Hann getur því staðið í marki Brighton gegn Newcastle þegar liðin eigast við á sunnudag.
Hinn 29 ára gamli Krul kom til Newcastle árið 2005 og spilaði alls 185 leiki fyrir liðið.