Að mæta Agüero var martröð

Sergio Agüero.
Sergio Agüero. AFP

Enski landsliðsmaðurinn Kyle Walker segist vera ánægður að þurfa ekki lengur að reyna að stöðva framherjann Sergio Agüero en þeir eru nú samherjar hjá Manchester City eftir að Walker gekk í raðir félagsins frá Tottenham í sumar.

„Að spila á móti Agüero er hrein martröð. Ég hef nokkrum sinnum mætt honum og hann er alltaf líklegur til þess að skora. Að vera samherji hans núna er stór bónus enda er hann frábær leikmaður,“ segir Walker.

Agüero hefur byrjað tímabilið vel eins og allt lið Manchester City en Argentínumaðurinn hefur skorað 6 mörk í fyrstu sex umferðunum í ensku úrvalsdeildinni og er markahæstur ásamt Álvaro Morata, Chelsea, og Lomelu Lukaku í liði Manchester United.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert