Endurkoma Brasilíumannsins Philippe Coutinho í lið Liverpool er líklega það jákvæðasta við liðið um þessar mundir en hann skoraði frábært aukaspyrnumark gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í síðustu umferð og skoraði mark Liverpool í Meistaradeildinni gegn Spartak Moskvu í jafntefli liðanna á þriðjudag.
Eftir að hafa beðið um að vera seldur til Barcelona í sumar eru orð hans eftir leikinn í Rússlandi líklega huggandi fyrir stuðningsmenn Liverpool-liðsins sem hefur ekki gengið of vel upp á síðkastið
„Ég er rólegur. Þetta er allt liðin tíð,“ sagði Coutinho eftir 1:1 jafnteflið.
„Ég mun halda áfram að berjast fyrir þá rauðu og mun gefa mig allan í þetta,“ sagði Coutinho við enska fjölmiðla.
Liverpool mætir Newcastle á sunnudag í ensku úrvalsdeildinni.