Pogba verður lengi frá

Paul Pogba.
Paul Pogba. AFP

Paul Pogba miðjumaðurinn sterki í liði Manchester United er ekkert á leið inn á völlinn í bráð en José Mourinho knattspyrnustjóri liðsins segir að félagið meðhöndli meiðsli Frakkans til langs tíma.

Pogba tognaði illa aftan í læri fyrr í þessum mánuði í Evrópuleiknum gegn Basel en hann hafði byrjað leiktíðina afar vel með liðinu.

Phil Jones og Michael Carrick hafa ekki náð sér af meiðslum og hvorugur þeirra verður til taks á morgun þegar United tekur á móti botnliði Crystal Palace í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert