Fellaini úr leik næstu vikurnar

Marouane Fellaini.
Marouane Fellaini. AFP

Marouane Fellaini leikmaður Manchester United og belgíska landsliðsins í knattspyrnu verður frá keppni næstu vikurnar.

Belgíska knattspyrnusambandið greinir frá þessu en Fellaini varð fyrir meiðslum á hné í viðureign Belga og Bosníumanna í undankeppni HM í gær og haltraði af velli eftir um hálftíma leik.

Þar með er ljóst að miðjumaðurinn sterki missir af næstu leikjum Manchester United og þar meðal af leiknum gegn Liverpool á Anfield um næstu helgi. Belginn hefur verið öflugur í liði United og sérstaklega eftir að Paul Pogba heltist úr lestinni sökum meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert