Dyche sterklega orðaður við Leicester

Sean Dyche.
Sean Dyche. AFP

Sam Allardyce knattspyrnustjórinn reyndi hefur ekki áhuga á að taka við stjórastarfinu hjá Leicester sem nú leitar að nýjum stjóra eftir að Craig Shakespeare var látinn taka poka sinn.

Allardyce er einn þeirra sem hafa verið orðaðir við stjórastöðuna hjá Leicester en hann segir í viðtölum við breska fjölmiðla í dag að hann sé ekki reiðbúinn að fara í starf á þessu stigi.

Sean Dyche knattspyrnustjóri Burnley sem landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson leikur með er nú sterklega orðaður við stjórastarfið hjá Leicester og þá hafa þeir Thomas Tuchel, fyrrum þjálfari Dortmund, David Wagner, stjóri Huddersfield, og Chris Coleman landsliðsþjálfari Wales verið nefndir til sögunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert